Rafrænir reikningar breyta leiknum - Ný skýrsla frá Billentis.
Íslensk fyrirtæki eru að mestu hætt að nota pappír og PDF reikninga, en nýja Billentis-skýrslan sýnir að næsta tæknistökk snýst um miklu meira. Rafræni reikningurinn verður grunnurinn sem tengir saman alla virðiskeðjuna og breytir leiknum.
Mesta hagræðingin næst þegar innkaup, afhending og reikningsskil flæða sjálfkrafa saman á milli kerfa:
Sjálfvirk pörun: Kerfin fara að bera saman rafræna pöntun, afhendingarseðil og rafræna reikninginn á örskotsstundu.
Snertilaus reikningsskil: Með því að tengja þessa þrjá þætti saman ná fyrirtæki snertilausri úrvinnslu. Rafræna reikningaferlið flýtir greiðslum og lágmarkar villur.
Hvað breytist með ViDA-löggjöfinni?
Framundan eru miklar breytingar á alþjóðlegu og evrópsku viðskiptaumhverfi með ViDA (VAT in the Digital Age) tilskipuninni.
-
Rafrænir B2B reikningar verða skylda í milliríkjaviðskiptum á Evrópska efnahagssvæðinu í síðasta lagi árið 2030.
-
Venjuleg PDF-viðhengi í tölvupósti munu ekki teljast lögleg. Aðeins strúktúruð gögn verða tekin gild.
-
Skattyfirvöld munu krefjast rauntíma upplýsinga, sem mun smám saman ná yfir flutningsskjöl og birgðastöðu til að tryggja rekjanleika.
Græna bókhaldið flýgur inn með rafræna reikningnum
Umhverfiskröfur (ESG) eru að verða hlutskipti allra fyrirtækja, stórra sem smárra. Bráðum munu stórir viðskiptavinir eða ríkið krefjast þess að fá að vita hvert kolefnisspor vörunnar eða þjónustunnar er sem þú seldir þeim.
Græna bókhaldið verður jafn sjálfsagt og fjárhæðir og virðisaukaskatturinn.
Hvað þýðir þetta fyrir þig sem notar Inexchange?
Inexchange gerir þetta einfalt. Þótt regluverkið breytist hratt þarft þú ekki að hafa áhyggjur. Við eigum og stýrum öllum okkar kerfum innanhúss, sem tryggir þínu fyrirtæki örugga og áhyggjulausa gátt beint inn í framtíð stafrænna viðskipta.
Sæktu skýrsluna HÉR
