Uppgötvaðu

„Hjörvar leiðir kraftmikla sókn Inexchange á Íslandi“

Written by Per Gustafsson | 9.2.2026 14:59:16
 

„Eftir tæplega tveggja áratuga starfsemi á Íslandi er mikilvægt að við kynnum okkur aftur til leiks. Inexchange býður upp á nýjar lausnir og leiðir til virðisaukningar sem munu fleyta okkur aftur í fremstu röð,“ segir Hjörvar Jóhannesson, nýráðinn framkvæmdastjóri Inexchange á Íslandi.

Visma tryggir sér fullt eignarhald

Breytingar hjá félaginu má rekja til samnings sem undirritaður var í nóvember 2024. Norræni tæknirisinn Visma, móðurfélag Inexchange, eignaðist þá eftirstandandi 50% hlut í Inexchange ehf. Við það varð fyrirtækið, sem upphaflega var stofnað af Íslendingum í Skövde í Svíþjóð, að fullu í eigu samstæðunnar.
Með þessari styrktu stöðu hefur Inexchange ákveðið að sækja af meiri þunga inn á íslenskan markað. Liður í þeirri vegferð var ráðning Hjörvars, sem leiðir nú íslenska teymið en það skipa einnig þau Þórunn S. Eiðsdóttir, Guðmundur Á. Guðmundsson og Heimir Björnsson.

Horfir til virðisaukandi þjónustu

Hjörvar kemur til Inexchange frá íslenska tæknifyrirtækinu Taktikal, þar sem hann starfaði sem sölu- og viðskiptaþróunarstjóri. Hann segir áskorunina hjá Inexchange hafa verið tækifæri sem ekki var hægt að sleppa.
„Tímasetningin gæti ekki verið betri. Þótt íslenskur markaður fyrir rafræna reikninga sé orðinn vel þroskaður, þá liggja tækifærin í nýjum nálgunum og lausnum. Ef þú einblínir eingöngu á grunnþjónustu eins og sendingu rafrænna reikninga, þá mettast eftirspurnin fljótt. Lykillinn liggur í því að byggja ofan á það með virðisaukandi þjónustu sem hjálpar viðskiptavinum að ná frekari árangri,“ útskýrir Hjörvar.
Hann nefnir einnig íslenskar rætur fyrirtækisins sem vannýtt tækifæri í markaðssetningu. „Inexchange var stofnað í Svíþjóð af Þórði Erlingssyni, íslenskum athafnamanni sem byggði reksturinn upp á ógnarhraða. Margir Íslendingar vita ekki af þessari tengingu, og ég tel að hún opni fyrir okkur dyr.“

Reynsla úr fremstu víglínu

Hjörvar er enginn nýliði í íslensku viðskiptalífi. Hann starfaði í 22 ár hjá Intrum á Íslandi (síðar Motus), þar sem hann hóf ferilinn 21 árs gamall og vann sig upp sem sölustjóri og forstöðumaður viðskiptastýringar. Þar öðlaðist hann víðtæka reynslu af kröfustýringu, innheimtuferlum og stafrænni ráðgjöf fyrir stærstu fyrirtæki landsins.„Ég áttaði mig fljótt á því að ég er ekki þessi dæmigerði ‚ýtni‘ sölumaður. Minn fókus er ávallt á að leysa vandamál viðskiptavinarins og búa til skilvirk ferli. Þegar viðskiptavininum vegnar vel, þá fylgir árangurinn í kjölfarið,“ segir hann.

Metallica og vinnugleði

Hjörvar er 47 ára Kópavogsbúi, kvæntur og þriggja barna faðir. Hann er mikill áhugamaður um útivist, stundar skíði, golf og veiði, en játar einnig dálæti á þungarokki. Hann er dyggur aðdáandi hljómsveitarinnar Metallica og stefnir á tónleika með sveitinni í Búdapest í sumar.
Lagið „Fuel“ með Metallica, sem fjallar um drifkraft og metnað, virðist lýsa nálgun Hjörvars á nýja starfið vel: Það er gefið í, og stefnan er sett á toppinn.