Inexchange, hefur ráðið Hjörvar Jóhannesson til að leiða sókn fyrirtækisins hér á landi. Inexchange er leiðandi norrænt tæknifyrirtæki í sjálfvirkni viðskiptaferla sem sérhæfir sig í rafrænum reikningsviðskiptum, móttöku og sendingu rafrænna reikninga og snjallri gagnaúrvinnslu fyrir þúsundir fyrirtækja.
Hjörvar kemur til Inexchange frá Taktikal þar sem hann gegndi starfi sölu- og viðskiptaþróunarstjóra, en þar áður starfaði hann hjá Motus þar sem hann hóf störf árið 2001, síðast sem forstöðumaður viðskiptastýringar.
„Við höfum leitað að leiðtoga sem getur drifið áfram vöxt okkar og styrkt stöðu okkar á Íslandi til framtíðar. Við fundum strax að Hjörvar var rétti maðurinn í verkið,“ segir Simon Strandell.
Inexchange hefur haft starfsemi á íslenskum markaði í tæp 20 ár. Félagið aðstoðar fyrirtæki við að stafvæða flæði reikninga, pantana og annarra viðskiptaskjala til að auka skilvirkni og rekstrargæði.
„Inexchange býður upp á nýjar lausnir og leiðir til virðisaukningar. Við erum nú að taka nýtt stökk í okkar vegferð og markmið okkar er skýrt; að endurheimta stöðu okkar sem leiðandi afl á íslenskum markaði,“ segir Hjörvar.
Simon Strandell bætir því við að með reynslu og tengslaneti Hjörvars, með öflugum stuðningi frá Inexchange í Svíþjóð, muni félagið geta hámarkað virði þjónustunnar fyrir íslenska viðskiptavini. „Með okkar lausnum fá fleiri íslensk fyrirtæki tækifæri til hraða sinni stafrænu vegferð.“
Fyrir nánari upplýsingar:
Hjörvar Jóhannesson, framkvæmdastjóri, Inexchange ehf
hjorvar@inexchange.is