Nýr risi á sviði rafrænna reikninga
Inexchange, Maventa, mySupply og efacto hafa tilkynnt um samruna undir vörumerki Inexchange frá og með 1. október næstkomandi. Með samrunanum verður til stærsti þjónustuveitandi Evrópu á sviði rafrænna reikninga og skeytamiðlunar. Félögin fjögur heyra öll undir Visma-samstæðuna og er sameiningin ein stærsta fjárfesting Visma til þessa.
Mæta ViDA-tilskipun Evrópusambandsins
Samrunanum er ætlað að mæta ört vaxandi eftirspurn eftir stafrænum skýrsluskilum (e-reporting) og rafrænum reikningum í Evrópu. Fram undan eru miklar breytingar á regluverki, þar á meðal ViDA-tilskipun Evrópusambandsins (VAT in the Digital Age), sem gerir rafræna reikninga skyldubundna í viðskiptum á milli fyrirtækja fyrir árið 2030.
Inexchange mun þjónusta fyrirtæki af öllum stærðum og opinbera aðila um alla Evrópu, en samstæðan mun meðhöndla tugi milljóna reikninga í hverjum mánuði.
„Hvert og eitt af þessum fjórum fyrirtækjum hefur sterka stöðu á sínum heimamarkaði. Sameiningin gerir okkur kleift að þjóna viðskiptavinum um alla Evrópu sem ein heild, með aukinn kraft í nýsköpun og dýpri þekkingu á regluverki,“ segir Allan Freiheit, nýr forstjóri hins sameinaða félags.
Óbreytt þjónusta en aukin tækifæri
Samruninn mun ekki hafa tafarlausar breytingar í för með sér fyrir viðskiptavini eða samstarfsaðila félaganna. Þjónusta, samningar og núverandi tengiliðir haldast óbreyttir og verða allar nýjar breytingar kynntar með góðum fyrirvara.
„Viðskiptavinir okkar eru í brennidepli,“ bætir Allan Freiheit við. „Það eina sem breytist með tímanum er að nýir möguleikar opnast: víðtækari evrópsk skírskotun, hraðari nýsköpun og sterkari bandamaður í þeim breytingum á regluverki sem allur geirinn stendur frammi fyrir.“
Fyrir nánari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við:
Allan Freiheit, mySupply
Tölvupóstur: aof@mysupply.dk
Ola Widegren, Inexchange
Tölvupóstur: ola.widegren@inexchange.se
Hjörvar Jóhannesson, Inexchange á Íslandi
Tölvupóstur: hjorvar@inexchange.is
Um Inexchange
Inexchange (Svíþjóð): Stofnað árið 2008 af íslensku frumkvöðlunum Þórði Inga og Gunnari Búasyni, en félagið hefur rekið útibú á Íslandi frá árinu 2009. Félagið er í dag leiðandi á sviði rafrænna reikninga og skeytamiðlunar á Norðurlöndunum.
Um Maventa
Maventa (Finnland): Stofnað árið 2007 og er leiðandi á sviði rafrænna reikninga- og skjalalausna í Finnlandi. Yfir 300 hugbúnaðarfyrirtæki treysta kerfinu, sem vinnur úr meira en 12 milljónum skjala í hverjum mánuði. Vettvangurinn auðveldar hugbúnaðarhúsum að tengja viðskiptavini sína við evrópsk reikninganet.
Um mySupply
mySupply (Danmörk): Stofnað árið 2001 og sérhæfir sig í stafrænni skjalastýringu, rafrænum reikningum og virðisaukandi þjónustu. Félagið er tæknilegur brautryðjandi og ráðgjafi við mótun á innviðum rafrænna reikninga í Danmörku og Evrópu. Viðskiptavinir treysta á djúpa tækniþekkingu mySupply til að einfalda flókin fjárhagsleg ferli og tryggja alþjóðlega reglufylgni.
Um efacto
efacto (Danmörk): Hefur yfir aldarfjórðungs reynslu og djúpa sérþekkingu á sviði rafrænna reikninga. Öflugt kerfi efacto er hannað til að halda utan um móttöku reikninga og sjálfvirka afstemmingu, sem útrýmir handavinnu og flöskuhálsum við úrvinnslu.
